Skoðun

Eins og sandur úr greip

Jón Steindór Valdimarsson skrifar

Vextir skipta miklu máli fyrir alla þá sem skulda. Því hærri sem vextirnir eru því dýrara er að skulda og þeim mun minna eftir til annarra nota. Þetta gildir jafnt um almenning, fyrirtæki, ríki og sveitarfélög.

Vaxtastig ræðst af mörgum þáttum, m.a. verðbólgu, stöðugleika, greiðslugetu skuldara, áhættu og trausti. Ef einn eða fleiri þættir eru í ólagi kostar það hærri vexti. Það er ótvírætt allra hagur að vextir séu hóflegir og stuðli að jafnvægi.

Óverjandi fjármagnskostnaður

Í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem nú er til meðferðar á Alþingi koma fram athyglisverðar og ógnvekjandi upplýsingar um skuldir hins opinbera og vexti af þeim næstu fimm árin. Vextirnir einir og sér eru áætlaðir 565 milljarðar króna! Það er um 1,9 milljón á hvern Íslending 18 ára og eldri, svo þarf auðvitað að greiða skuldirnar sjálfar.

Ísland og Malta

Ríkisfjármál eru nokkuð flókin en til að gefa okkur örlitla innsýn inn í aðstöðumun þeirra landa sem halda uppi eigin örmynt og þeirra sem taka þátt í alþjóðlegu myntsamstarfi er ágætt að líta til Möltu.

Ísland er eyja með tæplega 384 þúsund íbúa, á aðild að EES og er með eigin gjaldmiðil en Malta er eyja í Miðjarðarhafi með um 520 þúsund íbúa, á aðild að Evrópusambandinu og er með evru sem gjaldmiðil.

Árið 2022 voru skuldir hins opinbera sem hlutfall af landsframleiðslu 65,9% á Íslandi en 52,9% á Möltu. Bæði löndin eru því talsvert skuldsett. Fjármagnskostnaður vegna skuldanna var 5,88% af vergri landsframleiðslu á Íslandi en 1% á Möltu. Hér munar miklu þó visslega séu skuldir Íslands 13 prósentustigum hærri.

Það sem stingur í augu og svíður undan er að meðalvaxtahlutfall á skuldum Íslands er 8,9% en 1,9% hjá Möltu. Munurinn er hvorki meira né minna en 4,7 faldur eða heil 7 prósentustig. Á þessum tíma var verðbólga á Íslandi 8,3% en 6,2% á Möltu. Ef tekið er tillit til verðbólgunnar og raunvextir af skuldum reiknaðir þá voru þeir 0,61% á Íslandi en mínus 4,25% á Möltu. Á þann mælikvarða munar 4,85 prósentustigum. Það er feiknarlega mikill munur en endurspeglar mat lánardrottna á stöðu ríkjanna tveggja.

Hvað myndir þú gera við 63,9 milljarða?

Samkvæmt ríkisreikningi árið 2022 var fjármagnskostnaður íslenska ríkisins 117,3 milljarðar. Ef við gefum okkur að íslenska ríkið hefði notið sömu vaxtakjara og Malta á þessum tíma hefði vaxtakostnaðurinn verið 53,4 milljarðar. Mismunurinn er hvorki meiri né minni 63,9 milljarðar króna! Skýringin á þessum mun er sú að Malta er í ESB og notar evru. Til samanburðar gera fjárlög ársins 2024 ráð fyrir að 53,3 milljarðar renni til samgöngu- og fjarskiptamála. Það væri hægt að fjármagna þessi útgjöld öll og eiga 10 milljarða í afgang.

Er ekki tímabært að hætta að afneita augljósum staðreyndum?

Aðild Íslands að ESB og upptaka evru er stærsta hagsmunamál okkar allra.

Höfundur er formaður Evrópuhreyfingarinnar



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Um dánaraðstoð

Steinunn Þórðardóttir,Oddur Steinarsson,Thelma Kristinsdóttir,Katrín Ragna Kemp,Magdalena Ásgeirsdóttir,Margrét Ólafía Tómasdóttir,Ragnar Freyr Ingvarsson,Teitur Ari Theodórsson,Theódór Skúli Sigurðsson skrifar

Sjá meira


×